hæ..

06.04.2007 20:54:01 / -torabryndis

..

leiðinleg ég?.. já!

ég er búin að skipta aftur.. www.torabryndis.bloggar.is

takk!

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.04.2007 18:15:35 / -torabryndis

**

HVER ÆTLAR MEEEÐ???**

» 1 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 02:34:08 / -torabryndis

*

Kvöldið.

Fann þetta á netinu áðan.. frekar skemmtilegt!

ég skrifaði Þóra í kassann..og þetta kom:

-Strong and Beautiful, Just Like Þóra-

..svo ýtti ég aftur, og þá kom:

-Probably The Best Þóra In The World-

ekki slæmt.. prófiði þetta!

http://www.thesurrealist.co.uk/slogan.cgi

góðanótt*

þórabryndís


» 5 hafa sagt sína skoðun

14.03.2007 15:04:07 / -torabryndis

fjórtándimars2007

Where you are the one, the one, That lies close to me.

Whispers, "Hello, I miss you quite terribly."

I fell in love, in love, With you suddenly.

Now there's no place else, I could be, but, Here in your arms.

hæ. það er eitthvað svo erfitt að hreyfa sig þegar manni er illt í maganum! var með ælu í fyrradag og ég gat ekki hreyft mig eftir það. þetta tekur ekkert smá á, er alveg orkulaus. batnaði heldur ekki þegar ég fékk aftur í magann í morgun.  og núna er ég heima meðan allir eru útí í góða veðrinu!

mér finnst vera svo stutt síðan ég byrjaði í framhaldsskóla og núna er ég alveg að verða búin með ár. ef þetta heldur áfram að vera svona fljótt að líða þá verð ég nú að fara að ákveða hvað ég ætla að læra eftir stúdentinn! ..en ég hef bara ekki hugmynd um hvað ég vil læra! hvenær veit ég það?.. reyndar þá langar mig að fara e-ð annað að læra. veit ekki með útlönd. það er eiginlega of langt. allavega e-ð frá Húsavík.

fullt að gera í skólanum. ritgerðir og allskonar verkefni. nóg að gera fram að páskum allavega. úff. ég á bráðum afmæli. ég er að verða sautján ára. og þar af leiðandi að fá bílpróf! ætla ekkert að flýta mér að fá það á afmælisdaginn. ég er sallaróleg! ætla að fá það fyrir sumarið bara.

Guðrún- þetta var bara fyrir þig ;**

þórabryndís

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.02.2007 18:34:58 / -torabryndis

heido..

sælir nú. ég er ennþá hérna. alveg kominn tími til að blogga smá.

dillidagar og árshátíð búið!
salsað stóð uppúr að sjálfsögðu! ekkert smá sem þessar konur þurfa að hrista sig. ekki alveg mín sterkasta hlið. ég semsagt dansaði salsa og fór á hestbak. var ekkert smá hrædd. enda henti folinn Guðrúnu af baki. bölvaður.. árshátíðin var ótrúlega fín og flott. ekkert smá gott að borða. held ég hafi aldrei étið svona mikið.. enda var ég snögg að fara heim og úr kjólnum! svo var ball á GamlaBauk á eftir með Ínu Valgerði og co !

-æfingaleyfið alveg að koma í hús en það er von á því á föstudaginn! vonandi.. þá skal fólk fyrst fara að passa sig í umferðinni. ekki nema mánuður og einhverjir nokkrir dagar í 17 ára afmælið. of stutt eiginlega! veit að mamma er ekkert að fíla það að koma með Þóru litlu uppí bíl.

skólinn gengur ágætlega. eða hann gengur allavega. miðannarmatið komið og ég er nokkuð kát bara!! saga er náttúrulega ekki mitt aðalfag..

nenni ég þessu e-ð?..  ætla að klára ritgerðina úr Mice and Man!

og Hilma! þú kemur ekki nálægt hárinu á mér !!!*

adiosamigos!

þórabryndís

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

12.02.2007 18:41:27 / -torabryndis

tólftifebrúartvöþúsundogsjö

vúhú. mánudagur.

einhver búinn að hlusta á nýja Justin timber.. diskinn? fullkominn diskur. hann er svo flottuuur! þá justin. ekki diskurinn.. Tvíbbar og co eru að fara á tónleika með honum í Köben í sumar og nei. þau eru ekki búin að bjóða mér með. langar sjúklega. langar bara til útlanda. hver vill bjóða?

allavega..

kominn mánudagur. sem er vesen. átti að vera próf í dag. en nei. sirrý veik! ég kvarta ekki. komum heim úr borginni um hálf fimm í gær. og jiminn. það var gaman. allt svo fínt og flott eitthvað. komum í borgina eftir frekar leiðinlegt flug um 11 leytið. brunuðum í Kringluna, sem við vorum einungis 8 mínútur að finna:) þá fyrst fylltist Ingvar stolti. versluðum af okkur rassgatið þar og fórum á hótelið. það reyndar gekk ekki eins vel og með Kringluna. þurftum að hringja tvisvar í 118. haha.. Þórunn: geturu nokkuð sagt mér hvaða götur liggja að Borgartúni? frekar fyndið. við fundum svo loksins hótelið. Hótel Cabin. við Ingvar fórum svo og fengum okkur söbbara. og kræst. við þurftum að bíða í svona 20 mínútur. drengurinn var ekkert eðlilega lengi. svo fengum við alltof litla sósu og ooof mikið kál! vondur söbbari hér á ferð. fórum og græjuðum okkur og hentumst útí rútu sem flutti okkur uppí Gullhamra. þetta samstarfsfólk okkar eru allt saman gamlingjar eða svona eldra fólk. varla neinn á okkar aldri. fengum rosalega fínt að borða. þriggja rétta og næs. eftir matinn og mis skemmtileg skemmtiatriði var dansleikur. Vinir vors og blóma léku fyrir dansi þar. gríðarlegt stuð. eitthvað dönsuðum við en fengum fljótt leið á því. kölluðum á leigubíl og fórum uppá hótel. afhverju var leigubílstjórinn ekki í belti??? stoppuðum stutt á hótelinu því við urðum svöng. skutumst niðrí móttöku og spurðum um næstu 10-11 búð, og hún var bara rétt hjá.  Ingvar var svo góður að skutla okkur þangað. fengum okkur snakk og harðfisk. hollustan í fyrirrúmi:) flest allir voru farnir að sofa þegar við komum uppá hótel aftur, þannig að við Kiddi fórum í næsta herbergi og áttum gott spjall við Elís og Karó. fórum svo að sofa um 3 leytið ef ég man rétt. Mannskapurinn var svo ræstur kl 11. áttum að vera komin út kl 12. en einhvernveginn höldum við að það hafi verið tómt rugl. en út fórum við og á KFC. best í heimi.  svo þegar við vorum búin að snæða og fatta að klukkan var orðin pínu mikið fórum við af stað á flugvöllinn. eða meira svona á rúntinn. Ingvar var svo skemmtilegur að rúnta með okkur aðeins í íbúðarhverfum og svona. enda er ekkert gaman að bíða bara á flugvellinum! léleg afsökun. rötuðum svo loksins og náðum akkúrtat í flugið.  flugið heim var ekkert betra. hristingurinn maður. þoli ekki svona. loksins komum við á akureyri og brunuðum beint heim. stoppuðum reyndar í Ak-inn og fengum okkur ís í öllum hitanum! haha.

það er alveg sama hvert maður fer það er alltaf gott að komast heim aftur. ekki myndi ég vilja búa í reykjavík. alltof mikið stress og þrýstingur. þessi ferð var alveg mögnuð. takk allir **

kvittiði nú! og tvíbbar.. munið að bjóða mér með!! :)  

takkfyrir lánið á myndinni Birgitta !

þórabryndís

við á heimleið. djöfulsins krútt **


» 10 hafa sagt sína skoðun

09.02.2007 01:34:55 / -torabryndis

heido

nóttina.

sit hérna hálfsofandi með tölvuna í fanginu. langar að rita nokkur orð. mútta og co farin til london! þau eru örugglega í keflavík núna. skil ekkert í henni móður minni að skilja mig eftir heima. en ég fæ að fara suður í staðinn. heil eilíf síðan ég fór þangað síðast.ég ætla að kaupa mér kjól, já ég ætla í kjól! við ætlum að vera fallegasta og fínasta starfsfólkið! segir maður fínasta?...

allavega.. skóli í dag. frekar lítið að gerast. nema það að þýska er dauði og sömuleiðis saga. ætti að sjálfsögðu að banna þetta.  get nú samt ekki sagt að ég sé eitthvað dugleg að læra undir þessi próf. þið vitið ekki hvað það er erfitt. hverjum er ekki sama hvað Alexander mikli gerði?..og hvenær Rómarveldi var stofnað!!? og hverjum er ekki sama um núþálegar sagnir í þýsku. allavega er mér sama. en ég verð að mæta í þessi próf.

ég fór á Bubba tónleika í Sjallanum um síðustu helgi. skruppum á glerártorg aðeins og þar kom gamli dönskukennarinn minn úr MA og fór að spjalla bara. hún er svo indæl. alltaf með logbog-ina! elska allir hana Hafdísi, enda ekki hægt annað. reyndar þá sakna ég kennaranna í MA. mest sakna ég stefáns samt. það var alltaf gaman í tímum þar. ég sakna bara MA. ekki það mikið samt að ég fari þangað aftur. ónei. og Kara rún. komdu til húsavíkur!!!!

mig langar að gráta. þetta Breiðavíkurmál er rugl. aumingja mennirnir. er bæði búin að lesa þetta í DV og horfa á kastljósið og ísland í dag. ég verð svo reið við þetta fólk. eins og með barnaperrana í Kompás. ég hélt alltaf að svona væri ekki til. við búum á Íslandi. það er ekkert svona fólk hérna. þetta er svo lítið land. en nei. aldeilis ekki. það er ekkert bara einn.. heldur margir. ojbara!

oh. afhverju get ég aldrei farið snemma að sofa. ég fer alltaf í tölvuna og í bubbles. það ætti svo að taka þennan leik og henda honum útaf netinu.

jæja. komið útí rugl!

kvittði **

þórabryndís

*égelskaþigþvíþúelskarmig*

sætir?*

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.02.2007 23:26:11 / -torabryndis

sjöundufebrúartvöþúsundogsjö

heido.

kannski að skella nokkrum orðum hérna inn.

ég er flutt heim til húsavíkur og þar er best. kemur fyrir að ég hugsa á sunnudögum: djöfull, ég þarf að fara á akureyri. sem er frekar fyndið. en sko kemst ég að því að ég fæ að vera hérna bara..

ég er byrjuð í skólanum og mér gengur ágætlega bara. ég náði öllum prófunum í MA nema stærðfræðinni, enda er ekkert meira kúl en að sitja stæ-áfangann aftur:) fékk ágætis einkunnir. sexur,sjöur,áttur og níur, já og einn þrist !! ég er byrjuð í ökukennslu. hér er að fæðast atvinnuökumaður, þó ég segi sjálf frá. nóg um það..

búið að vera frekar rólegt hjá mér síðan ég flutti. nema þessi vika.. sögupróf, þýskupróf, þýskuverkefni, félagsfræðifyrirlestur.. brjál að gera.  Við Hanna eða já kato john ætlum að taka þátt i NEF-rennsli, sem er undankeppni söngkeppni framhaldsskólanna og stefnum við að sjálsögðu á sigur.

reykjavík um næstu helgi. essó að splæsa gistingu og flug, ekki slæmt. kiddi ætlar að koma með mér.. þetta verður svooo gaman. þarf bara að finna mér föt.. það er svo erfitt að vera stelpa og velja sér föt!! hlakka samt svo til, alltaf gaman að fara með þessu liði :)

er orðin svo speisuð. skoðiði-- www.myspace.com/torabryndis

ætla að halla mér. góðanótt

-þórabryndís


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.01.2007 18:54:47 / -torabryndis

..

Hæ.

Langaði bara aðeins að blogga. Um þetta leyti á morgun verð ég ekki MA-ingur lengur. Síðasta prófið á morgun, íslenska. Fékk að vita fyrir helgi að ég náði félagsfræðinni! húrra fyrir mér. Þó ég sé ánægð með að vera komin til Húsavíkur aftur á ég eftir að sakna MA. þar eru söngsalir og alltaf meira að gera. allt öðruvísi skóli. Hér er ég með fullorðnu fólki í tímum, ég er ekkert vön því!. Hérna þekki ég líka alla, þá er erfiðara fyrir mig að standa upp og tala. það er óþægilegt að tala fyrir framan þá sem ég þekki vel. á akureyri stóð ég bara upp og talaði, þá líka þekkti ég krakkana ekkert. vonandi verður þetta auðvelt bara.

Á eftir að kaupa allar bækur. einhver sem á handa mér? tími eða tými ekki að kaupa allar. er þó búin að redda nokkrum. ég er að verða svo fullorðin e-ð. er að fara í fyrsta ökutímann minn á morgun eða hinn. úffapúff. hlakka eiginlega til bara. í sumar get ég farið ein með sjálfri mér í útilegur. þarf ekki að hugsa um hver geti keyrt. samt ætla ég að vinna eins og mófó í sumar eins og síðasta sumar. ekkert nema peningagræðgi í mér. Guðrún ég treysti á þig í slættinum.

Það er svo gott að vera komin á Húsavík aftur. hér er Kiddi, mamma og pabbi, systkini mín, litlu frændur mínir. og ekki má gleyma ömmu og afa. Guðrún er hérna líka. ekkert lítið sem ég sakna hennar. hlakka svo til að vera með henni í sögutímum. get ekki beðið. jú og í íþróttum. það verður svo gaman hjá okkur. Hún er að draga mig í skokka.. ætti ég ? geri ég mig ekki bara að fífli? hlakka svo til að geta talað við stelpu. er ekki mikið búin að gera af því á akureyri. er að vísu búin að vera með Unni frekar mikið, hún hlustar á það sem ég hef að segja þessi elska. og kiddi, hann er oft fórnarlamb líka.

ætla að hætta. hvað er eiginlega langt síðan ég bloggaði svona langt? ég á skilið að fá komment og kvitt :)


» 12 hafa sagt sína skoðun

16.01.2007 15:25:02 / -torabryndis

árið 2006..

Árið 2006

Janúar- Gerðist e-ð merkilegt í janúar? eina sem ég man eftir er að ég byrjaði síðustu önnina mína í grunnskóla :)

Febrúar- Man ekkert sem gerðist í febrúar. Hreiðar átti jú afmæli :)

Mars- Sýndum Frelsi ef ég man rétt :) og mútta átti afmæli.

Apríl- Ég varð 16 ára og fór í fyrsta skipti til útlanda. Þarna mátti ég jú líka byrja að læra á bíl, en gerði það ekki. Ég ákvað að fara í skóla á Akureyri. Menntaskólann á Akureyri.

Maí- Ég byrjaði að vinna í Essó. Pabbi átti afmæli.. Þarna voru líka samræmdu prófin og skólaferðalagið.. best :) ég sakna bekkjarins :’( minnir að hér hafi líka verið farið á Kópasker og í óvissuferð í mývó ...

Júní- Byrjaði að vinna hjá bænum. Alltaf svo gaman hjá okkur. Guðrún, ég treysti á þig næsta sumar. Vann þá hjá bænum og í Essó og var aaalltaf að vinna. Fór ekki í eitt einasta ferðlag í sumar.

Júlí- Linda og Hilmar áttu afmæli. Hanna Jóna átti afmæli og fékk bílpróf. Jii hvað það var gaman að rúnta um nóttina! Með spæs görls í botni.. þarna fékk ég líka að vita að ég væri að verða MA-ingur..

Ágúst- Kiddi minn átti afmæli* Dóra fór til Svíden, Sveina flutti á Vopnafjörð og allir byrjuðu í skólanum nema ég.

September- Sennilega hræðilegasta mánuðurinn. Ég byrjaði í ofvöxnum skóla, Menntaskólanum á Akureyri. og flutti frá Húsavík. En ég kynntist fullt af fólki sem gerði þetta miklu auðveldara. Guðrún mín varð 16 ára..

Október- Skólinn á fullu og ég gerði ekkert annað en að læra og sitja í rútu á milli Húsavíkur og Akureyri. 26.október vorum við Kiddi búin að vera saman í ár ;**

Nóvember- Ég ákvað að koma í skóla á Húsavík og sé ekki eftir þeirri ákvörðun.

Desember- Ég lærði og lærði og flutti heim með allt dótið mitt í lok desember. Átti yndisleg jól og áramót með fjölskyldunni. Lilja mín og Fannar trúlofuðu sig 30.des..  svo tók lærdómurinn við. Því ég er MA-ingur og tek prófin í janúar..

Veit ekki hvort ég sé að gleyma einhverju. Pottþétt helling. 2006 var frábært ár. Vonandi verður 2007 betra, þar sem ég er komin á Húsvíkina mína aftur.  Sit núna sveitt yfir þýskubókunum mínum. Eins gott ég nái prófinu..  Er búin að fara í 3 próf, búið að ganga ágætlega .neeema kannski stæ í gær :/ var svo lengi að ég náði ekki að klára einu sinni... en við krossum puttana bara  Ætla að halda áfram að læra J 

Kvittiði..


» 9 hafa sagt sína skoðun

11.01.2007 21:24:02 / -torabryndis

..

Hæ. ætla bara að láta vita af mér.. Ég ætti að vera að lesa fyrir enskupróf en ég finn mér alltaf e-ð annað að gera! Við Fannar erum að horfa á KF nörd.. og greyjið kallarnir :)

Fór í fyrsta prófið í dag. FÉL 103, held bara að ég hafi náð, eða vonandi. Svo bara enskupróf á morgun! Er byrjuð í FSH.. ég er svo mikill námshestur að ég er í tveimur skólum. Sem betur fer eru bara prófin eftir hér.. ég fer alveg að komast heim. Þarf að vísu að vera ofur dugleg í febrúar.. missi 3 vikur af skólanum heima. sem er bara vesen.

Ætla ekkert að koma með svona *ársins 2006* strax, en það kemur :)

ætla að demba mér í Opportunities! jei..

kvittiði**


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.12.2006 19:17:07 / -torabryndis

jólinjólin

GLEÐILEG JÓL ALLIR..

HAFIÐ ÞAÐ GOTT YFIR JÓLIN OG ÁRAMÓTIN *

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

21.12.2006 18:42:09 / -torabryndis

21.des

Jájájá...Ég er á lífi....og ég er komin í jólafrí :) Flutt allt draslið mitt heim á Hú í gær.. og það pínu skrýtið! Búin að vera á Ak með allt dótið mitt og núna er það farið..  En mér er sama.. ég er komin í jólafrí :)  Allir löngu komnir í frí.. en ég er MA-ingur og neyðist til að vera í skólanum lengur. Diskó í Pakkhúsinu um síðustu helgi, og vá.. það var svo gaman:) hef aldrei dansað svona mikið.. þau voru e-ð að fagna próflokum og jólafríi! Ég var bara með.. ég hafði engu að fagna..

Kíkti með Hönnu og Unni í búðir í dag en verslaði ekki neitt, er að spara svo mikið! Jólin alveg að koma og ég er ekki tilbúin.. á eftir að kaupa jólagjafir og skreyta og skrifa jólakort og allt. Ég hef ekki tíma til að halda jólin á sunnudaginn.. Ég pantaði mér klippingu áðan, fer þó ekki fyrren 29.des, pæja á áramótunum :) een, hvað á ég að gera við hárið?

Fór í útskriftarveislu til Mæju í gær, og hún var ekkert smá fín. Svo hélt ég heim á Hú, í jólafrí. Liljan mín og Fannar fara svo austur í kvöld og verða þar yfir jólin..  skrýtið að hafa ekki Lilju þegar við förum með kortin, veljum jólagjöf handa múttu og þegar við opnum pakkana og þegar hún fær pottana sína og verður hæstánægð :) svo verður engin Lilja í jólaboðinu hjá ömmu Þóru,jahérna.. ég get huggað mig við það að þau verða hér á áramótunum..

Langar svo að kíkja á kaffihús og fá mér kakó og möffins eða e-ð meððí í kvöld.. er einhver með? Ef það verður ekki brjál veður eins og er búið að vera... Ætla að fara að raða í mig kjúlla...

Kvitta?


» 5 hafa sagt sína skoðun

10.12.2006 17:46:33 / -torabryndis

10des..

Sælir..

Spurning um að blogga.. Ég sit hérna heima í nýju flottu stofunni okkar, eða flottu stofunni með nýju húsgögnunum! Ma&pa bara eyddu og eyddu.. ánægð með þau. Var að enda við að klára fjölskylduverkefnið mitt, dugleg Þóra :)

Búin að vera heima á Hú alla helgina bara.. voða næs. Fórum ekkert á tónleikana í Kvosinni á föstudaginn.. Kiddi minn e-ð veikur ;**  Á laugardaginn áttu Lilja afmæli, 25 ára. TIL HAMINGJU LILJA ;**  Mamma hélt smá veislu með kökum og tilheyrandi.. voðavoða gott. Um kvöldið hitti ég Hönnu mína og við fórum á tónleika með Eivøru. Hún er æði, væri alveg til í að geta sungið..

Dröttuðumst svo heim og í Olís að fá okkur langloku og dúddamía.. ég hélt ég myndi fjúka. Illa hvasst.. þoli ekki þennan bévítans vind..  Takk fyrir kvöldið Hanna ;** ..fór svo heim til Kidda að sofa ;)  Hann fór svo að læra áðan..og ég heim! og náði að klára verkefnið mitt..  húrrahúrrahúrra..:)

Það er aaaaalveg að koma jól.. og ég engann veginn að fatta það! Enginn fílingur fyrir þessu.. er að reyna að hlusta á jólalög og éta mandarínur en það gerist ekkert.  ..það kemur kannski þegar ég verð komin í jólafrí, sem er btw aaalveg að koma! Þó ekki fyrren 20.des!

            En ætla að halda áfram að læra í FÉL. Kvittiði...


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.12.2006 16:06:05 / -torabryndis

....

Hvar sástu mig fyrst ?

Ertu góður vinur/vinkona mín ?

Þykir þér vænt um mig ?

Hvað veistu um mig ?

Hef ég gert eitthvað gott fyrir þig ?

Hvenær sástu mig síðast ?

Hefuru kysst mig ?

Helduru að við eigum eftir að halda sambandi eftir nokkur ár ?

Hefuru verið vondur við mig ?

Hvernig hélstu að ég væri þegar þú sást mig fyrst ?

Hvaða lag minnir þig á mig ?

Þegar þú hugsar til mín hvaða þrjá hluti dettur þér í hug ?

Hver er uppáhalds manneskjan mín ?

..geriðetta :)


» 9 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
RSS tengill
-skólinn-